Skjár 1

Velkomin á Skjá Eitt

LÍNULEG DAGSKRÁ
ALLA DAGA FRÁ KL 17:00

Smelltu hér að neðan til að horfa á beint streymi:

Skjár 1 er íslensk sjónvarpsstöð sem fyrst fór í loftið þann 16 október árið 1998.  Dagskrárstefna Skjás 1 er að sýna kvikmyndir með íslenskum texta á föstum sýningartímum klukkan 5,7,9 & 11 alla daga vikunnar í línulegri útsendingu.

Stuttir dagskrárliðir á milli kvikmynda eru á dagskrá, en höfuðáhersla okkar eru kvikmyndir og sjónvarpsmyndir. 

Upphaflegt markmið Skjás 1 var að ná til þjóðarinnar, skemmta landsmönnum og veita endurgjaldslausa afþreyingu með íslenskum texta og skapa gott og öðruvísi sjónvarp en þá var almennt í boði. Þetta á enn við í dag, nú þegar erlend áhrif streyma yfir landsmenn, hefur þetta markmið aldrei verið eins mikilvægt og einmitt núna. Dagskrárefni Skjás 1 er kynnt með íslenskum heitum. Myndgæðin eru í háskerpu 1920x1080p. (FHD)

Rekstrargrundvöllur Skjás 1 miðast við að bjóða kostanir og auglýsingar á dagskrárliði sína framvegis. 

Skjár 1 er opin og án endurgjalds. Við innheimtum ekki áskriftargjald fyrir dagskránna okkar, en áskiljum okkur rétt il að innheimta “myndlyklagjald” kr 795.- á mánuði fyrir aðgengi að dreifikerfum þriðja aðila. Ástæðan er einfaldlega sú að við greiðum fyrir allt slíkt aðgengi og þurfum því einfaldlega að færa þann kostnað til þeirra er notast við þessar áhorfsleiðir.

Um er að ræða ýmis öpp sbr. Android, Apple TV, LG, Samsung, Android TV og væntanlega IPTV myndlyklagjöld símafélaganna.

Við bendum á að áhorf um okkar eigið vefsvæði er ókeypis og spilarinn hefur Airplay & Chrome eiginleika, auk þess sem hægt er að horfa í öllum snjalltækjum með nettengingu.

Línulegt streymi Skjás 1 er um eigið vefsvæði um streymisspilara um CDN (Content Delivery Network). CDN er kerfi sem hjálpar til við að sjónvarpssendingar nái til áhorfenda á sem hagkvæmastan hátt og með sem minnstum töfum og truflunum.

Við tilkynnum um nýjungar og bilanir á Facebook

Rekstraraðili Skjás 1 er Íslenska Sjónvarpsfélagið sem var stofnað 5 Nóvember 1986 og telst því eitt elsta starfandi efnisréttar (content) fyrirtæki landsins, en félagið var eitt af fyrstu myndbandaútgefendum landsins og rak fjölda myndbandaleiga í Reykjavík auk þess að hafa einnig stofnað sjónvarpsstöðina Stöð 1